ÚTGEFIN SPIL

RUNIR
Stórbrotnar sögur, dásamlegar ástarjátningar, minningar um fallnar hetjur. Ristu allt í stein og þú gætir orðið mestur allra rúnameistara!

MYTHICAL ISLAND
Notaðu mátt verndaranna til að endurskipuleggja landslagið á eyjunni dularfullu svo vættirnir og ævintýraverurnar komast heim!

BARDAGI
Byggðu upp veldi með því að safna sem mestu gulli. Farðu í orustu, stundaðu viðskipti eða snúðu heiðingjunum. Verður þú næsti landshöfðingi?

THE XMAS
2 spil í 1; komdu vörunum til skila eða farðu í sleðakeppni. Fljótlegt og einfallt spil fyrir 5 ára og eldri. Hjálpaðu Jóla að koma gjöfunum til skila!

VIKINGS
Hertaktu sýslurnar á Íslandi og sigraðu andstæðingana! Spilaðu sem ein af ættum Sturlungaaldar og náðu yfirráðum á Íslandi.
SPIL Í ÞRÓUN

VEDUR
Markmið þitt sem öldungurinn í þorpinu er að tengjast veðurandanum þínum til að virkja það veður sem hentar þorpinu þínu sem best. Tryggðu vegsemd þess til framtíðar.

ANCIENT ALIENS
Þróaðu, leiðbeindu og uppfærðu mannhópana sem þér var úthlutað og reyndu að gera þá siðmenntaða. Byggðu minnismerki sem framtíðin getur dáðst af!

SKY ROUTES
Það er þörf á nýju byltingarkendu samgöngukerfi í Sky City og verður keppt um hvert þeirra hentar best! En fyrst þarft þú að sanna að þitt samgöngukerfi sé skilvirkara og hagkvæmara en hinna!

VAULT 0
Ferðastu um óbyggðirnar og reyndu að finna brotin sem sýnir þér hvar Vault 0 er staðsett til að finna lækningu við veirunni miklu. En hafðu hraðann á, því tíminn tikkar…
Ímyndaðu þér möguleikana…
Life is a game, never stop playing…